Náði mér i ógeðslega pest...

Ég náði mér semsagt i ógeðslega pest og er bara en fárveik.Þetta byrjaði allt á Gamláskvöldi með migreni sem stóð i heila viku.Á mið fékk ég 40stiga hita og flökurt,beinverki og bara allan pakkann...Fór svo þarna á Bspitalann á föst því ég var að hressast,,en samt leið mér eins og 10 trukkar hefðu keyrt yfir mig.Laugardaginn förum við i matarboð og ég reyni i fyrstaskiptið siðan á Mið að borða eitt hvað,en náði alveg heilum 5 bitum af þessu gómsæta kjöti:(.Mér leið bara mjög illa eftir þessa litlu máltið,rauk upp með hita og sjóntruflanir og svima.Haffi ákveður að fara með mig á Læknavaktina,þar halda þeirr að Botlanginn væri að fara hjá mér og sendir mig niðrá Bráðamótöku á lansanum.Þarna var ég öll rannsökuð fram og til baka tekið slatta af blóði.Eftir smá tíma fengum við góðar fréttir að þetta væri ekki Botlanginn heldur eitt hvað annað sem vildu rannsaka,svo þarna var ég komin með lyf og næringu i æð ''ÆÐISLEGT'' Eins og ég sagði i siðustu færslu þá væri ég sko alveg til i að taka við af henni Guðnýju,ég hugsa að óskin min hafi bara ræst svei mér þá hehehe...Loks er hun orðin hress og komin til dagmömmu þá tekur mamman við.Jæja loks eftir ein líter af vökva var ég að hressast og einkennin að detta niður.Úr rannsóknunum kom að ég er með sýkingu i meltingafærunum og var að þorna uppCrying.Ég er en ekkert farin að geta borðað en reyni að fa mér smá vökva en því miður verð ég bara mjög slöpp eftir það lika.ÞETTA ER BARA ÖMURLEGT.....

Núna ætla ég að fara og njóta þess að vera alein heima og slaka á,farið bara vel með ykkur á meðanHeart

Koss,koss og knús á alla :)


Loksins var ákvörðun tekin.....

Spitalaferðin var pínu rússibani i gær hjá okkur.Eins og ég var búin að seigja þá átti ég tíma hjá félagsráðgjafa á vegum Barnaspitalans.Við fórum aðeins yfir okkar mál og hun var bara mjög hissa yfir því hvað við fáum lágar bætur og litla þjónustu.Hún ætlar að reyna kippa því i lag ásamt öðru fyrir okkur,ég vona svo innilega að sé hægt...Við ætlum að reyna núna á þessar Foreldragreiðslur sem eru um 130þús á mánuði.En því miður þar sem þetta eru nýleg lög þá flokkast þessi sjukdómur ekki inn i hann því börnin eru ekki nógu veik,,,,sem er bara tómt kjaftæði,,,, þau þurfa mjög mikla umönnun bæði heima fyrir og á spitulum.Og þar með er þessum fjölskyldum hafnað því miður,en hún vill reyna því margt annað spilar inn í hennar heilsu fyrir utan Ónæmisgallann.Vitiði ég myndi sko alveg frekar vilja vera sækja um eitt hvað annað fyrir barnið td Sundnámskeið eða eitt hverju sliku heldur en þetta og að stelpan min fá að hafa sina heilsu.Ég myndi sko gera allt til þess að hun fái hana til baka....

Ákvörðun tekin...

Á meðan ég var inni hjá Felagsráðgjafanum hringir Ásgeir i mig og biður mig um að hitta sig og ég geri það...Þá fengum við þessar erfiðu fréttir að stelpan eigi að fara i Lyfjagjöf fram i April því blóðprufurnar líta ekki vel út i aðalmótefninu en hin mótefnin haldast en i lægri kantinum.Ég var pinu óánægð með þær fréttir því hann Ásgeir er mjög duglegur við að seigja okkur að hun sleppi alveg við lyfjagjafir,svo allt i einu búmm lyfjagjafir og ekki er þetta i fyrsta skiptið hjá honum.Mér finnst þessir dagar sem hun er i innlögn rosalega erfiðir og ég er alveg i svona sólahring að jafna mig og hvað þá litla hetjan min.Hún þarf að þola mest,ég mundi alveg vilja skipta við hana ef það væri hægt.Við eigum semsagt ekki að mæta til Ásgeirs 19.Januar heldur á dagdeiltina 16.Januar og þá byrjar hennar fjórða lyfjagjöf.19 jan er Það þá bara matarsáli og Bæklunarlæknir.27Jan er það Lúther meltingalæknir.Ég er nú bara mikið að spá i að fa leigt bilastæði og herbergi þarna niður frá þá sparast ferðarnar hehehehe....Nei nei hugsa að heima sé best i fríunum frá Barnaspitalanum.:)

Ég kem svo með fréttir hvernin gengur og hvað kemur út hja félagsráðgjafanum Wink

Koss,koss og knús á allaHeart


Ekki góð 18 mán skoðun :(

Góða kvöldið allir...

Januar mánuður ætlar að vera mjög svipaður og hinum Januar mánuði,,nema enginn píppari núna hehehehe....Já kannski að byrja á þri,við fórum að hitta matasálann sem var ekki rosa ánægð með hana en jólin eru að klárast svo þá er ekki mikið tekið á öllu...Vonandi verður bara næsti tími betri.Ég átti lika tima á Félagsráðgjafa en það var svo skemmdilegt að þeirr hringdu i mig þega ég var mætt á staðin og þá var hún veik''FRÁBÆRT''.Við eigum að hitta hana á morgun i staðin og fara yfir okkar mál...

Snúllan min fékk svo hita á þri og var með hann i tvo daga:(Sem er mjög fúllt þvú hún er búin að vera á sýklalyfjum i 8 vikur..18 mánaðaskoðun var svo i dag,mig langaði nú bara fara grenjandi þaðan út en harkaði það af mér og bara verð að vera sterk og hugsa að þetta gengur yfir bara tímabil....Prinsessan er semsagt með Veirusýkingu og aftur með Misslingabróðir ;(Skvísan er farin að falla i kúrfu sem hún má ekki við í Okt var hun 9770gr i Des 10,2kg og nú 9875gr''ÆÐI''Hún mátti ekki fá bólusetninguna og vill læknirinn að við höfum aftur samband við Lúther meltingasérfræðing.Við sem fengum að útskrifast frá honum i Juni sl.

Ég er nú sjálf ekki best til farana núna er með ælupest og hita.Sem ég mæli ekkert séstaklega með þegar maður þarf að hugsa um veikt barn hehehe....Ég treisti mér ekki í það að skrifa meira og ætla að leggja mig aðeins....

Sendi koss,koss og knús á allaKissing


Góð helgi!!!!!

Já eins og ég var búin að seigja þá ætlaði ég að vera með föndurdótið mitt i Kolaportinu alla helgina.Það gekk svona glimmrandi vel bara seldi og seldi,er búin að ákveða að vera svo nokkrar helgar i Januar og Febrúar...Ég er jafnvel að pæla i að taka saman hér föt sem ekkert er verið að nota og dót og svona hehehe....Er ég ekki sniðug híhíhí......Siðan min http://harskrauttilsolu.barnaland.is

Jæja vinkona min var ekkert smá hjálpsöm og var með Guðnyju fyrir okkur alla helgina og vá hvað við erum þakklát henni:)Hún kom nú að kikja á okkur i dag og fannst ekkert smá gaman,,öskraði alveg af gleði yfir öllu dótinu þarna hehehe.Ykt fyndið að sjá hana algjort krútt....Hún er búin að vera mjog óduglega við að borða siðustu viku,,,möguleiki því við erum ekkert búin að vera borða hér heima alltaf i matarboðum:)Við eigum svo að mæta næsta þri til matarsála og félagsráðgjafans á Barnaspitalanum.Gaman verður að sjá hvað kemur úr þeim fundum,mig hlakkar allvega til heheh veit ekki af hverju en svona er þetta bara er það ekki.....

Tviburarnir eru búnar að vera hjá pabba sinum frá því á gamlásdag og er ég að biða eftir að þær komi heim..Búin að bíða lengi eftir að fá að knúsa þær og kissa.Þær eru nú búnar að vera þar eiginlega siðan fyrir jól,þær eru nú ekki vanar að vera svona lengi i burtu frá mér svo þetta er orðið fínt og mamman vill fá þær heim hehehe....Fríið er nú samt búið að vera nokkuð gott og þær hafa lika bara gott af þvi að vera með þeim lika og fá frí fra okkur.Skólinn byrjar svo á fullu hja þeim á Þri og þeim farið að hlakka til W00t

Er þetta ekki bara fint update,,,ætla fara skella mér fyrir framan tvið og horfa á Law and order:)

Koss og knús

Erna Sif


Á morgun

Laugardaginn og Sunnudaginn mun ég vera i Kolaportinu mikla hehehe,,, frá kl 11 til 17 báða dagana..Ég ætla vera aðalega með hárspangirnar min svo eitt hvað af spennum og hárböndum.Allir velkomnir og vonandi sjáum við sem flesta.....Grin

Flott hárskraut fyrir öll tilefni!!!!!!!

Þið getið skoða myndir hér http://harskrauttilsolu.barnaland.is

Kveðja Erna


Gleðilegt nýtt ár allir.

Og við þökkum öllum fyrir stuðningin á árinu sem er að líða.Það er búið að vera mjog gott að koma hér inn og skrifa sitt hér niður,lika búin að læra helling.Ég er nú ekki sú duglegasta að tjá mig skriflega og geri það kannski ekki alveg eins og eg vildi hafa það en þetta kemur bara helt ég hehehe.....Þetta blogg er nú aðalega um veikindi dóttur minnar og mina tilfinningu i gegnum þau.Ég er svo lika með barnalandsiður fyrir öll min börn með myndum og dagbók yfir því sem er að gerast hja þeim,en mér fannst ekki viðeigandi að vera skrifa i vefdagbók barna minna um mina líðan og veikindin á þeirra siður.Svo ég opnaði þessa síðu sl sumar,um Guðnyju og hvað við erum að ganga i gegnum.Ég hef verið spurð af því af hverju ég skrifi ekki um hin börnin min,sem ju ég geri fólk verður bara að lesa betur:)svo þetta er ástæðan af hverju ég tileinka þessari siðu nánast bara um veikindi hennar.mér fannst ég bara ekki vera fá nogu útrás á barnalandi og algjorlega óviðeigandi að tjá mig um það sem mig langar þar,sem ég held að allir skilji:)

En já eins og þið sjáið kannski þá er nafnið mitt orðið Þorvaldur en það er maðurinn minn,hann er skráður sem ábyrgða maður á þessu bloggi.Það er vist eitt hvað verið að breyta reglum hér á mbl og eg veit ekkert hvernin ég ger laga þetta hehehe..

Við vonum að nýja árið fari vel i ykkur og allir jákvæðir með nýtt ár og ný upprifjun fyrir okkar litla land,sem hefur ekki átt það besta i ár.Við ætlum allavega að leggja i það bjartsynari og vera jákvæð um að allt blessist með hetjuna okkar og að fjárhagurinn rísi upp.Árið 2009 byrjar allvega svona hja okkur,við munum vera mikið á Barnaspitalanum i jan bara eins og siðasti jan var hehehe...En núna i ár ætlum við sko i engar innlagnir við erum bara að fara i heimsóknir og hananú..Við erum að fara hitta matarsála þann 6 Jan,gengur það bara súper vel barnið mitt er bara farin að borða allt i burtu á heimilinu.Hún er nú samt ekkert rosa hrifin af svona máltiðum heldur vill vera narta i brauð og kex ofl,en kvoldmáltiðin rúllar ofan i hana ef við borðum heima,er ekki mikið fyrir að borða i veislum og svona..Öll min réttindi hja TR og VR eru að renna út núna i Jan svo við þurfum núna að fara vinna i þeim,hittum félagsráðgjafan upp á barnaspitala lika 6Jan.Hún ætlar að fara i þetta með okkur og skoða hvaða fleiri aðstoð við gætum fengið.Ásgeir er svo 19Jan,þá verður vonandi tekin ákvorðun um mótefnagjöf þvi hun var farin að lækka i Okt.Guðny er nuna búin að vera i sýklameðferð i rúmar 7 vikur minnir mig og eru 5 vikur eftir,mér finnst þetta alveg hræðinlegt að vera dæla þessu i barnið en þetta er að hjálpa henni að halda allvega bagteríunnum i burtu frá sér og það viljum við.Siðustu tvær vikur eru bunar að vera æði engi hiti og ekki neitt,nema hennar króniska kvef sem Ásgeir vill lata kikja á þegar við hittum hann næst.Barnið er búið að vera með grænt og gult hor siðan i Águst takk fyrir,ekki alveg að ganga..Við eigum svo að panta tima hja hennar hjartalækni i Jan og fá tima i Feb eða Mars.

Við ætlum bara halda áfram að vera sterk saman og reyna vinna i okkar husi sem við erum að reyna byggja og selja hitt husið.Eyða meira stundum með börnum,vinum og fjölsk.við hofum svoldið ekki sinnt þvi,því við erum bara alltaf að vinna og berjast yfir okkar skuldum til að halda okkur uppi.Eftir Kompás þáttinn náðum við bara eitt hvern veigin að slaka á,eða við bara ákveðið að við gerum bara eins og við getum og erum bara ánægð með það:)Svona 4 vikum fyrir þáttinn voru mjog erfiðar,við vorum búin að vera i bönkum og IBL að reyna fá hjálp og lausnir en alltaf fengum við neitunar bréf heim og svorin öll því þið eigið tvær eignir er ekkert hægt að breyta lánum eða fá lán.Eða eignin i Njarðvik er ekki komin á nógi hátt byggingar stig.Svo loks fengum við sölu á husið og lán fra Festa enþá hafnaði BANKINN því öllu,því hann vildi fá þessar 5 millur sem við áttum að fá i vasan en við þurftum að fá þessar 5 millur til að borga skuldi sem eru i bygginguna og er að fara i lögfræðing.....Við erum búin að lifa núna i eitt ár bara fyrir skuldum og það er ekki að ganga nú verðum við bara að vinna fyrir því sem við getum og fara hugsa um okkur og okkar fólk.Jæja það er sko hægt að röfla um þetta endarlaust en ég ætla ekki að gera það,því allt það svarta á að fara i burtu og það bjarta koma inn er það ekki bara...

Petreu gengur vel i sinni sjúkraþjálfun ykt dugleg að gera æfingarnar og kennir svo systrum synum þær her heima heheh,,voða gaman að sjá þær 3 her i handahlaupum og hoppi.Stór ákvörðun verður tekin i Jan eða Feb með fæturnar á henni Petreu,fyrst er reynd þessar æfingar svo hjálpartæki fra TR sem eru sér hannaðir skór með stuðning og annar með þykkari botni.Við fáum svo viðtal við fótaskurðlækni,hvort það þurfi að gera aðgerð á báðum fótum''Gaman,gaman eða þannig''

Hafið það bara gott annað kvold og farið vel með ykkur.Við ætlum allavega i áramótaparty og hafa það gamanWizard

KOSS KOSS OG KNÚS Á ALLA.....


Jóla kveðja á alla...

allarskutlurnarsaman

Öllum heilsast vel og okkur líður bara mjög vel,Guðnýju fannst jólamaturin alvega æði en var ekkert rosalega ánægð með Hangikjötið áðan uuuu,,,enda búin að háma i sig öllim vinberunum sem voru a borðinu hehehe....Við fengum að hafa oll börnin sem var æðislegt,tviburarnir fengu sko bönns af gjöfum sem þær voru ýkt ánægðar með,búnar að borða eins mikið og þær geta i sig látið af kjöti,nammi og ís hehe,,þessar elskur.Við þökkum bara fyrir allar gjafirnar og kræsingarnar Kissing

Jólaylur frá okkur öllum...

Ps. Smá fréttir á http://januar.barnaland.is


Er að gera fallegar spangir

Ég er aðeins að dunda mér hér heima við þetta mun fara á fullu i þetta eftir áramót.Hægt er að panta þær eftir þörfum kikjið inn á siðuna min http://harskrauttilsolu.barnaland.is  Það eru allar upplisyngar á forsiðunni...

Aðgerð hjá Guðnýju ofl 081

alla farnar :) koma aftur

Aðgerð hjá Guðnýju ofl 083

Þessi er til :)

Kveðja Erna Sif


Bóndinn á afmæli i dag :)

Minn elskuleigi eiginmaður er 32 ára i dag,við viljum þakka honum fyrir allt sem hann hefur fært og gert fyrir okkur.Ég veit ekki hvar ég væri án hans i dag,ef við værum ekki saman og ég ætti ekki þessa yndislegu og fullkomnu stelpu sem við eigum saman.Elskum þig út á lífinu þú ert æðislegur faðir og maður....InLove

Við seigjum bara til hamingju með afmælið elsku Haffi minn og pabbi okkar,vonandi nærðu að njóta dagsins vel með okkur Wizard

Guðrún systir min á lika afmæli i dag og við óskum henni lika til hamingju með daginn.Steinunn litla frænka náði æðislegum árangri i dag og það var að útskrifast úr FS.Innilega til hamingju með Steinunn min frábært hjá þér.Og þá er það Stella systir sem náði lika þeim frábæra árangri að útskrifast úr FB i gær,sem sjúkraliði.Æði til hamingju með það sæta,hlakka til að sjá alla i veislunni i kvöldW00t.

Jæja nú er ég hætt þessari væmni og ætla fara vekja afmælisbarnið og njóta hans.Á meðan byð ég að heilsa öllum og góða helgi allir....Grin


Fjölskyldan i Njarðvík :)

Ein alltaf með þakkar ræðu hehehe... 

Okkur hér i Njarðvík langar að þakka ákveðnu fyrirtæki hér á Suðurnesjunum,fyrir jólakortið og gjöfina sem i því fylgdi.Við fengum þessa æðislegu gjöf senda með pósti i dag og hún mun sko koma sér mjög vel fyrir okkur fjölskylduna séstaklega svona yfir hátíðirnar.Við áttum nú ekki von á öllum þessum gjöfum og stuðningi en þetta sýnir bara að við verðum bara öll að standa saman og ótrulegt að sjá hvað fólk getur verið gott.Við ætlum að halda þessari baráttu áfram og ég hugsa að það sé alveg ykkur að þakka.Sendum jólakveðjur á alla og vonum að allir njóta jólana vel,þússund kossar og jólaylur........

Þá er það Barnaspítalinn i dag...

Við fórum i dag og hittum matarsálfræðinginn hennar Guðnýar og gengur allt úper vel.Barnið farið að borða og meira segja niður um að fá borða,sem er bara æði hehehe...Ég ætla ekki að fagna of snemma því ég vill ekki verða fyrir vonbrigðum sem við ætlum sko ekki að verða fyrir núna.Hún á bara núna fara hætta þessu og borða hahaha,,,svo maður verði nú pinu feitur um jólin hahaha...Við erum með alveg svakalegt prógramm fyrir hana og skráum hvern bita og hegðun.Svo týbist hjá henni við erum búin að vera með svona prógramm i vikur og hun er búin að vera ýkt góð og borðar eins og hestur:),sem er bara gott sko en halló akkurat núna týbist.Guðný er núna búin að vera a sýklalyfjunum i 6 vikur,hún er búin að eiga núna góðar tvær vikur hress og ánægð.Nebbinn byrjaði svo að stíflast i morgun og alveg ágætt búið að koma úr því hehehe,,við ætlum sko ekkert að fara standa i veikindum yfir hátiðarnar vera bara hressa,sætar og ánægðar:)

Jólaleikrit i dag...

Eftir spítalann skruppu stelpurnar i klippingu voða sætar og fínar.Eftir þetta var farið i Akurskóla og þar beið okkar jólakökur og kaffi ummm bara gott hjá krökkunum.Fyrstu bekkingar syndu svo leikrit,sungu og sögðu svo brandara hihihi,,bara fyndið og krúttlegt.Á morgun eru svo litlu jólin og jólaball,stelpurnar orðnar mjög spenntar og farnar að sofa fyrir átta LoL Pabbi þeirra ætlar svo að taka þær á morgun og þær koma ekkert heim aftur fyrr en á aðfanga dag,svo það er pínu frí framundan....

Myndataka 3,10,08 020

 

 

 

 

 

 

 

Jólakveðja fjölskyldan i Njarðvík Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband