22.8.2008 | 19:27
Skólinn. 1 bekkur.
Jæja ótrúlegt en satt,þá eru stóru stelpurnar mínar að byrja sinn fyrsta skóla dag i Akurskóla.Við fórum i skólasetninguna i dag.Fannst þeim þetta allt voða flott og spennandi og spurðu alveg heilan helling hvað hitt og þetta væri.Ég hugsa að mig kvíði meira fyrir heldur en þeim hehe,,,Eða kannski bara gráifiðringurinn að koma upp hja mer.Annars er nú ekkert langt siðan að mamman útrskrifaðist úr grunnskóla rett 7 ár siðan.
Við fórum svo og versluðum allar skólabækur,sundföt svo splæsum við á skólabúninginn eftir helgi.Mér finnst algjört æði að það séu svona búningar alveg möst.Ég var svo óheppin að þegar við ætluðum að smella af myndum af þeim þá varð myndavélin batterislaus Bara trassaskapur i mer að gleyma þessu en ég tók eina sæta hér heima.
Ég verður nú að viðurkenna það að maður er ekki alveg að kaupa þetta.En þau stækka svo ört þessi börn..
Menningarnótt svo á morgun og erum við að hugsa málið um að skella okkur ef veður leifir
Svo eru fullt af læknisferðum á Mánudaginn.Stór dagur Guðný verður skoðuð og vigtuð spennt að vita hvað kemur út úr þvi.Viktoria byrjar skóla árið vel og þarf að fá frí eftir 11 þvi hún er að fara hitta Gylfa hjartalækninn hennar Guðnýar.Það heyrðist vist eitt hver ólhjóð hja henni,örugglega eitt hvað svipað og Guðný er með en vonandi bara minna en þetta kemur í ljós á Mán.Haffi þarf lika láta kikja á hjartað þvi hann fær alltaf svona hjartadruflanir og svitna allur upp
Guðnýu gengur bara ágætlega hja dagmömmuni.Rosalega er erfitt að skilja hana eftir á öskrini,hún bara ætlar inní mig aftur.En svo er þetta bara búið eftir smá stund svo þegar ég kem þá alveg lifnar upp i minni og bara MAMMA og hleypir i fangið mitt brosir svo til dagmömmunar brosir byður um koss svo bara BÆ BÆ og veifar hehe bara krútt.....
Og nottlega leikurinn vá æðislegur ég var einmitt stödd i Pennanum og hann i beinni litli spenningurinn hja manni.Bara frábært standa sig eins og hetjur. ÁFRAM ÍSLANS,ÁFRAM ÍSLAND VÚHUHÚ,,,,,,,
Jæja Haffi er að ná i strákana og við ætlum að fara gera skóladótið ready.Merkja og setja ofan í tösku.Við Haffi ætlum svo bara hafa það kósy i kvöld.
ALLIR AÐ HORFA Á LEIKINN Á SUNN KL 07,45
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.8.2008 | 10:51
Frábært hjá strákunum okkar,,,
VÁ hvað mins er ánægð núna ÁFRAM ÍSLAND,,,,Ég náði nú ekki að halda mér vakandi fram að leiknum.En Haffi var að spá i að reyna vakna snemma á hótelinu og horfa á leikinn efast um það að sumir hafa nennt þvi hehe...
Ísland tekur þetta svo á Föstudaginn kl 12,15
Ég ætla bara leifa frettini að lesa sig sjálf
ÁFRMA STRÁKAR
![]() |
Ísland í undanúrslit á ÓL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 02:44
Að fólk skuli ekki geta látið annara manna eigur i friði..
Ekki finnst mér nú spennandi að lesa svona fréttir.Þar sem ég sit á varðbergi einn heima hja mér með börnin í fyrsta skiptið siðan það var brotist inn til okkar i Juni sl.Haffi er á Isafirði og ef hann hefur verið að fara þangað hef ég verið hja m&p á meðan en ákvað núna að kýla á það að vera heima.Get alveg viðurkennt það að ég er skit hrætt og get ekki sofnað.Ein biluð og heyri fullt af hljóðum sem ekki eiga veraÁN djóks þá er þetta ekkert grin að lenda i þessu.Mér finnst verst að öllu að vita af þvi að eitt hver ókunnugur er búin að vera inni á minu heimili og figta i minum eigum.Mér er alveg sama um dauðu hlutina en ekki sem var inn i simanum og i fartölvunni.Neyða nr og persónulegar upplisyngar um veikindin hennar Guðnýar.Það fæ ég ekki bætt.
Svo er það löggi mann sem ekkert gerir þvi þeirr eru ekki nógu mannaðir til þess hér á suðurnjesunum.Þetta eru svörin.Samt eru buin að koma vitni fram og ég með kvittanir fyrir öllu svo hægt væri að fara rekja þetta.löggan gerir ekkert og ég sem borga mina skatta.
SORRY bara varð að tja mig þvi mer liður alls ekki vel hér ein heima.Ætla fara og róa mig niður og halda áfram að halda mer vakandi...
![]() |
Tvö innbrot í Keflavík í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 18:02
Veit ekki hvar ég væri án hans.
Eins og ég var búin að seiga frá ætlaði hann Haffi minn að fara með mig i eitt hvað ferðalag um helgina og tókst honum það vel.Það var farið i bústað i Ölfusborgum.Á fimm vorum við bara 3 ég Haffi og Guðný.Það kvold var planað bara við tvö i pottinum með bjór,osta og kex svo nottlega kertaljós og rómantik,,,,,,,,.Á föst mættu svo bara tólf manns og var djammað og djúsað.BARA GAMAN,,,,,,.Laugardagsmorguninn var svo tekin rólegur og étið nammi og horft á handboltan
Áfram Ísland,,,
Svo um kvöldið var farið i Hveragerði þar var svona hátið svipuð eins og ljósanótt hér.Mjög sniðugt bænum er skip i 3 hópa og hver með sinn lit blár,rauður og bleikur.Ég veit ekki af hverju en myndi vilja vita tilganginn á þvi.En allaveg svo skreyta ibúar sitt hús og garða með litunum.Þetta var bara mjög gaman.Tók eina mynd,,,,
Ef þið klikkið á myndirnar þá stækka þær.
Svo um kvöldið strunsuðum við okkur á brennu,brekkusöng og flugveldasyningu.Sunn var svo bara risið upp frá dauða kl 12 og bústaðurinn þrifin og tekin i gegn og haldið heim um kl 18.Þessi helgi var bara æði takk æðislega fyrir mig.Mikið var gott að komast aðeins i nytt umhverfi og bara sleppa sér aðeins maður verður bara gera þetta oftar var farin að sakna pinu að fara i svona ferðalag þvi við vorum alltaf mjög dugleg við þetta aður en Guðný veiktist.Svo komu Petrea og Viktoria loksins heim eftir 17 daga ferðalag með pabba sinum.Þær skemmdu sér bara vel á Stykkishólmi og Barðaströnd
Þetta var helgin okkar i svona stuttu máli..........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.8.2008 | 13:54
Ekki ánægð :(
En ég segi það ekki maður á að vera þakklátur fyrir allt sem maður fær.Undanfarna mánuði hefur Guðný kennt okkur það.En ég sagði ykkur frá að TR hafði samband við mig og ætluðu að endugreiða mér allan lyfjakostnað sem er heldur betur hár hér á bæ.Bara i mars mánuði fór um 30þús i syklalyf.Hún hefur verið bara ágætt i sumar bara svona pestir sem sýklalyf ráða ekki við.En veturinn er allur framundan og hér á bær erum við að undirbúa okkur honum þvi DR Ásgeir rætti við okkur að hún hafi ekki myndað mótefni fyrir öllum veikindunum sl vetur svo þessi vetur yrði ekki dans á rósum.Allavega TR varðar fengum við 6093kr.Sem heldur litið finnst mér miða við að bara i Mars var reikningur upp á 30þús og hún hefur þurft sýklalyf max 5 sinnum i mánuði siðan i Nóv 07 og slapp vel i sumar.Svo þið geti ymindað ykkur sýklalyfja reikningin hér a heimilinu.Alveg öruglega hærri en 6093kr.
Guðný fór i 3ja skiptið til dagmömmunar og var núna i klukkutima.Gekk bara svona upp og niður öskraði svona fyrstu 7mín svo bara fin en það kom skeifa svona inn á milli þegar hún fattaði að mömmu vantaði.Aðal áhyggjurnar núna er að hun borðar litið sem ekkert.Borðar ekkert á morgnana svo prufaði dagmamman að gefa henni i hádeiginu og það var einn biti.Svo hún hefur ekkert borðað siðan kl 18 i gær.Og er ekkert að kvarta undan hungri en er bara valda öllum áhyggjum
.
Við erum svo að fara i óvissuna sem Haffi er að plana fyrir mig.Við komum heim á Sunnudaginn og systir min ætlar að vera heima og passa kisurna okkar.Ég bið bara spennt og kem með fréttir eftir hlegina.
Takk takk og góða helgi
Ps takk fyrir öll kommentin alveg æðislegt að lesa þau
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2008 | 13:52
Alveg ótrulegt
Að stúlkan muni bara finnast púff svona eftir 11 ár.Mér finnst þetta bæði gleði fréttir og sorgar fréttir.Ég meina hvað myndi maður gera i þessum sporum ? Barnið búin að gleyma móðurmálinu og vill ekkert segja hvaðan hún kemur eða hvað skeði.Allaveg mig sem móðir myndi halda að hun vildi aldrei vera hja henni að eitt hvað með hana hafa og greyið móðirin að þurfa ganga i gegnum þetta aftur.
En auðvitað vitum við ekki alla söguna
![]() |
Finnsk stúlka finnst eftir 11 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2008 | 16:48
Stóri dagurinn hennar Guðnýjar..
Það má nú segja það fórum i rúman klukkutima i aðlögun hja dagmömmunni.Gekk bara allt vel held ég hún var nú ekki alveg að meðtaka þetta og ætlaði bara inn i mig hehe,,,krútið.Svo svona siðustu 10min þá var min aðeins farin að rölta um og spjalla.Á morgun verður hún svo ein i svona 20min guð hjalpi systir minni þá haha,,,Eins og ég hef sagt áður þá var ég svo heppin að Guðný systir min var með pláss fyrir hana.Það er samt svo skritið að nú þekkjast þær enda nöfnur og hún var bara ekki að fatta þetta enda erum við mæðgurnar rosalega háðar hvor annari.Það var ákveðið i samráði við lækni að prufa dagmömmu og sjá hvernin það myndi ganga og lika með þeim skilyrðum að dagbók fylgdi henni og hún skrifar niður hvað hun borðar og hversu vel og hversu mikið hún drekkur og ef hún veður alltaf veik og slæm þá verður henni kippt út en við ætlum ekkert að gefast upp.Ég get voða litið farið á vinnumarkaðinn á meða málin standa svona þvi miður og biða með skólan fram að áramótum.Ég treisti mer bara ekki í það að vera festa mig i vinnu alla daga og svo er barnið kannski alltaf veikt þið kannski þekkið þetta mæður sem eiga langveik börn.Ég er að pæla i að fá bara stundum að vera á barnum hja mömmu þegar það vantar bara lika upp á félagsskapinn að gera annars er ég bara mjög stolt af mér hvað ég er buin að vera dugleg að hitta annað fólk i barneignarfriinu minu endalaust nóg að gera hja okkur á daginn.
Jæja teingdó eru að fara koma i mat svo maður þarf að vera gera steikina redy
Set eina mynd af Guðnýju og Guðnýju saman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.8.2008 | 15:28
Myndir
Ég var að henda inn myndum af öllum lyfjagjöfunum i sumar.Þær eru nú ekki alveg í réttri röð.Fyrsta gjöfin er siðust og svo siðasta gjöfin fyrst.Ég ætla að búa til nokkur albúm á næstu dögum þvi ég get ekki set myndir inn á barnaland eins og er svo öllum velkomið að skoða Set kannski ekki allar hér inn en þær koma allar inn á barnalandssiðurnar seinna.
Ætla syna ykkur smá kroppa myndir af minni um helgina.
Kisan okkar eignaðist svo kettlinga 13 July.
Jæja við Guðný ætlum að fá okkur göngu i Bónus.Sjáumst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.8.2008 | 22:38
Komin í núið
Við erum búin að búa nuna i nýja húsinu okkar siðan 1 Júni minnir mig og á þeim tima erum við alveg búin að fá að kynnast steinnöldinni.Það er svona hálfur mán frá þvi að baðið kom upp og vaskur i eldhús annars erum við búin að vera vaska upp fyrir utan hús og i sturtu hja mömmu eða Guðnýu systir smá útileigufylingur hehehe,,,Svo er svona vika siðan við fengum helluborð og ofn svo við höfum verið án heimilsmats i 2 mánuði jakk
Við keyptum okkur svo 42 tommu TV vegna þess að nyja plasma skjánum okkar var rænt i innbrotinu ásamt fleiru og mikilvægum upplisyngum i simanum minum og i fartölvu
En við getum nú ekki horft á TVið nema á dvd svo fengum við tölvuna sem var ekki stolið (þvi miður)upp i dag og NETIÐ VÁ VÁ LOKSINS
þetta er nú samt búið að vera fint að vera svona á steinnöldinni þvi höfum bara haft meiri tima i okkur og börnin og vinna i húsinu.
Ég bið spennt eftir næstu helgi Haffi gerir i þvi að pina mig með leindóinu sem hann er vist að plana.Helgin var nú pinu ónytt hja okkur mikið var buið að plana ætluðum í gönguna i gær og fara i sund en nei þá vaknaðu barnið með ælupest og hita gaman gaman en svona er þetta vist maður stjórnar þessu ekki Við fórum svo með hana niðrá sjúkrahus áðan til að kikja i eyru og fara með saur syni vegna sykingunar þar.
Guðny byrjar svo i prufu keyrslu hja dagmömmu á þri.Hún verður i góðum höndum hja systur en guð hvað það verður skritið að fara hanga aftur svona einn heima eða vera gera eitt hvað og ekki hafa hana með ser útum allt heilir 14man siðanÉG get ekki farið strax að vinna þvi ekki er vitað hvort hun geti verið hja dagmömmu og svo mun veturinn öruglega vera jafn erfiður og sá siðasti talaði dr Ásgeir um svo ég vil frekar vera undir buin honum og ekki festa mig i vinnu sem ég get svo ekki mætt i.
Svo koma tvibbarnir minir heim loksins á Sunnudaginn.Sakna þeirra endalaust.Ég hef bara ekki verið svona barnlaus siðan ég var 16 ára gömul.
Jæja komið nóg óðarfa röfl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2008 | 13:41
Skemmdilegt símtal
Ja ég fékk nu ánægjulegt símtal i vikunni frá TR Þeirr báðu mig um að safna öllum lyfjakvittunum hennar Guðnyar og ætlar þeirr að endurgreiða mer allan lyfjakostnað siðastliðið ár.Bara hamingja
Langaði bara svona að deila ánægjunni með ykkur.
Annars er bara finnt að fretta smá syking en i gangi en liður bara vel.Haffi ætlar svo að koma mer eitt hvað á óvænt þarnæstu helgi byð spennt eftir þvi.Tviburarnir eru núna bunar að vera hja pabba sinum siðan 1 Agust og koma heim 17 Agust.Ég heyrði aðeins i þeim i fyrradag og var mikið gaman hja þeim á Stykkishólmi en söknuðurinn er mikill her á bæ og hja þeim ég fekk að heyra að þeim langar pinu heim til mömmu sinnar enda hafa þær aldrei farið i svona langan tima i burtu frá mer
Þanga til næst hafið það gott.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)