Færsluflokkur: Bloggar

Vegna mikla eftirspurna :)

Vegna þess að allir eru að spurja um viðtalið,hvenin gekk og hvenar verður þátturinn sýndur...Ætla ég bara að reyna svara því hér hehehe...Þetta átti allt að ské i siðustu viku og þátturinn átti að vera á Mánudaginn 8 Des.Upptökur verða vonandi á morgun og þátturinn syndur 15 Desember Þetta er búið að vera mjög mikið stress og við búin að peppa okkur þvilikt upp haha,,LoLsvo við vonum svo innilega að allt krúið komi á morgun...W00t

ALLIR AÐ FYLGJAST MEÐ KOMPÁSI,15DESEMBER 2008:)

Ef eitt hvað breytist þá læt ég vita,love á allaHeart


Mamman komin með nóg af sýklalyfjum hehehe,,,

Ég spyr nú bara hvernin er það hægt haha ?? og ekki er það ég sem þarf að taka þau inn þvi miður...Ég myndi nú alveg frekar vilja það að ég ætti að vera jabbla á þessu eins og nammi,frekar en litli kroppurinn minn.Nú eru komnar 3 vikur frá þvi að Guðný byrjaði i þessari sýklameðferð og er ein og hálfur mánuður eftir :(Guðný hefur átt góða daga frá því hun fekk æluna i siðustu viku en kvefið er en að krauma i henni,við kippum okkur ekkert við þvi á meðan allt klært er hehehe...LoLMamman getur nú ekki sagt að skvisan hefur átt góða daga við að borða því miður,rétt i hádeiginu og smá bita af kvöldmatnum.Í dag hefur hún bara borðað 4 skeiðar af graut i morgun,1pela og nokkra bita af pylsu svo ein pela i svefn:=(Við fáum að heyra i Ásgeiri i miðjan Des með niðurstöður úr blóðprufum sem hann tók fyrir viku,við erum bara nokkuð jákvæð að allt komi vel úr þeim...W00tVið munum svo hitta hann i Jan og þá fær hún kannski að hætta á sýklalyfjunum.Hann lofaði mér þvi að næst þegar við hittumst mun hann taka ákvörðun um mótefnagjöfina og fara vinna i þessu matarveseni i henni,,,bara plísss dooo,,,,Spoturinn er orðin mjog stuttur við að gefa henni að borða en við gefumst ekki upp það þýðir ekkiGrin

Þá er fyrsti i aðventu runnin upp og við fjölskyldan skreytum hér allt sem skreyta gat...Því miður i ár verður ekki mikið um ljósadýrð hér á bæ vegna aðstæðna hjá okkur.Ég er búin að vera láta þetta pirra mig mikið að geta ekki skreytt alla glugga með ljósum og jólatréð,ég er svo mikið jolabarn og ELSKA JÓLALJÓS...En ég veit að þetta er óðarfa pirringur þvi jólin snúa ekki um það að hafa ljós um allt og gefa dýrar gjafir,heldur að njóta þess að vera með þeim sem þú elskar og þykkir vænt um,gefa kærleik og fá kærleika á móti...Halo

Jæja ég og Haffi ætlum að fara knúsa okkur upp i sófa.....

Jólaylur á alla.

Ps takk fyrir stuðninginn á siðustu færslu :)


Kompás á stöð 2 höfðu samband i dag..

Ég lét semsagt verða af því að hafa samband við fjölmiðla i gærkveldi og valdi kompás.Eftir að hafa horft á þáttinn endursyndan i gærkvöldi,heyrði ég að þeirr vildu fá að heyra frá fólki sem væri búið að vera leita hjálpar frá þessum stofnunum.Við erum ein af þeim og höfum enga hjálp fengið nema bara prufaðu að tala við þennan og allstaðar er lokað á mann...Ég skrifaði þeim smá brott af þvi sem hefur komið fyrir hjá okkur,hringd var i mig 12 timum seinna.Þeirr höfðu mikinn áhuga og sögðu að sagan okkar gæti kannski opnað augu stjórnmanna og fyrir almenningi..Ég verð að viðurkenna það að ég bjóst ekki við þvi að þeirr myndu hafa samband,hundruðu manna eru i sömu sporum og við og hafa öruglega send sýnar sögur.Þetta verður nú spennandi að sjá hvað skeður úr þessu og vonandi hjálpað fleirum...Ég er ekkert voða spennt fyrir myndavélinni,en eins og ein sagði hér hjá mér að ég hef öruglega lend i því verra sem er bara nokkuð rétt held ég hehe,,,.Viðtalið verður tekið liklegast á FöstudaginnWoundering

Kossar og knús á alla Heart


Talandi um að þurfa hlaupa eftir sinum réttindum...

Ég ætla byrja á húsunum minum tveimur sem ég á..Fyrir einu ári ákvöðum við hjónin að fara byggja og stækka við okkur þvi fjölskyldan okkar er svona ágætleg stór hehe,,,Settum ibuðina i bænum á sölu i okt 07 og er hun en á sölu ári seinna,,en ég er samt búin að selja hana fjórum sinnum.Fólk hættir svo við vegna þess að geta ekki borgað út,sem er mjög pirrandi en skiljanlegt þvi engin fær lán i dag Devil...En um daginn lendi ég i þvi að bankinn minn var tilbúin til að setja mig á hausinn.Ég náði semsagt sölu sem heitir maka skipti og 5 millur út i penningum.Þetta hentaði okkur vel sestaklega peningurinn þvi við skuldum 5 millur i bygginguna á husinu sem við búum i nuna og þar myndum við vera laus við allar lausa skuldir..En bankinn neitaði þessari sölu þvi þeirr vildu fá peninginn i sinn vasa arrrggg og þarna fórum við i djupan skitt út af frekju og nisku i banka..Jæja við eigum svo rétt á þvi að frysta lánin á báðum húsunum,en vildum bara frysta i bænum ok ekkert mál þurfti bara að ná i tvo gögn lánanr og söluyfirlitt.Við fórum svo með það i íbuðalánasjóð,okkur sagt þar að við myndum fá þetta i gegn ok bara æði og eg hélt að þetta væri búið mál..En nei nei fæ ég ekki sent i pósti i gær frá þeim búnka af blöðum sem ég þarf að fylla út og kvitta,fara og fá 2 votta fara svo og láta þynglysa þessu og koma svo aftur með þetta niðrí ibuðarlánasjóð ahhh hvað haldiði maður,,maður þarf að hlaupa útum allar trissur eftir öllum hlutum.Það er sko reynt að hafa allt flókið og leiðinlegt svo fólk sæki ekki um sin réttindi..

Ég ætla bara segja ykkur hreint út ég er 23 ára með 3 börn,2 fóstuborn og eina litla sem er langveik.Ég hef ekki mikið geta unnið frá henni og ég skulda 60 milljónir,þetta eru bara skuldir sem allir þurfa að hafa hus bill,tr skólagjöld og þess áttar.Ég nota ekki visa eða með yfirdrátt bara svo óheppin að eiga tvo hús:(Ég er ekki að byðja um vorkun eða neitt svoleiðis,ég bara skil ekki hvert get ég farið og snúið þessu við og búin að heyra þessa rikisstjórn tala um að ollum verði hjálpað en engin virðist hjálpa okkur og eru lokaðar dyr allstaðar þar sem við komum.Ég er buin að vera reyna allstaðar að fá lán fyrir lausum skuldum sem er að fara i lögfræðing og skuld breita lánum en ALLTAF NEI,NEI.Þessi segir mér að fara þangað en hinn nei þú áttir að fara þangað en svo fæ ég svar þú átt ekki rétt á þessu þvi lánið er búið að hækka um 3 milljónir siðan i Mai kræst ég er að verða geðveik æji,,ég hugsa oft hvort best sé ekki bara að lysa sig gjaldþrota eða eitt hvað hehe,,Nei segi svona við hristum þessa kreppu af okkur,verð bara að fara vera jákvæðari en það er mjog erfitt þega Stórt NEI er allstaðar:(

Svo eru það réttindin fyrir hana Guðnýju mina,,ég bað um að fá annað lyfjakort.kortið sem við erum með nuna giltir bara fyrir sýklalyf,en við þurfum kort sem er fyrir öll lyf.Þvi miður fengum við neitun á það sem er bara fúlt þvi lyfin sem hun hefur þurft að vera fá eru mjog dyr og notar þau bara i nokkra daga.Og TR tekur ekki þátt i þeim og ástæðan var sú að hitt kortið giltir en alveg til 4 næsta árs og þar með á hun ekki rétt á þvi að fá nytt kort...Ásgeir læknirinn hennar var ekki sáttur við þetta og vildi fá afrit af préfinu sem ég fékk og skrifa þeim svo nokkrar línur sem er bara cool og ég ánægð.við fengum endurnýjun á fæðuskírteinið hennar,samt giltir hitt til jan 09 og ekki voru þeirr að kippa sér upp við það.Við fáum aftur 22þúsund mánaðarlega sem er flott,en er varla að duga þvi mjólkin er komin upp i tæpar 3 þúsnd dollan takk fyrir...Mér var svo sagt fyrir stuttu siðan að ég ætti rétt á sjukradagspenningum frá VR vegna veikinda barns.Ég fór i það i gær og fékk vottorð hjá Ásgeiri,talaði svo við þær og þær tilkynna mér svo því að það er borgað aftur i timan.Það þýðir að ég fæ næstu mánaðarmót borgað frá juni 08,þá var eg buin i fæðingarorlofi.Ég var frekar pist með það þvi maður fær bara 9 mánuði i sen og eg er þá semsagt búin með 6 mánuði af 9 og á þá bara 3 mánuði eftir.UU,, af hverju þarf þetta að vera svona ??,ég hélt að ég væri að sækja um þetta og myndi bara gilta fra og með næstu mánaðarmót og ætti 9 mánuði eftir.Ég þarf að vera til staðar fyrir hana hér heima og verð að lifa lika,ég lifi ekki bara á þessum 28 þusundum sem hun fær i umönnunarbætur þvi launin hans fara i greiðsluþjónustuna.Svo ekki nóg með það ok ég á rétt á nuna þessum 3 mánuðum,en ég þarf samt að koma með annað vottorð eftir áramót.Þá fæ ég að vita hvort ég hafi rétt á næstu 2 mánuðum hehe,,,vá er eiginlega ekki að skilja þetta.En eins og eg sagði áðan þá er allt gert flókið og erfitt svo fólk sé ekkert að sækjast eftir þessu...Vá núna er komið nóg af þessu i mer,hafið það sem allra best þanga til næst...KOSSAR OG KNÚSS Kissing


Er a lìfi en bara i frìi

Er semsagt netlaus og blogga nokkur ord i gegnum sìmann minn.Talvan okkar fekk virus djofull i sig og er i vidgerd tessi elska.Gudny er buin a morgun i 2 vikna syklamedferd,forum a morgun a Barnaspitalann i eftirlit og akvordun tekin um nokkrar motefnisgjafir i vidbot.Mer fannst tessi syklamedferd ekki virka mjog vei a hana,bordar illa og fekk hita a mid og nuna med æluna og nidurgang asamt hita og miklu kvefi..Eg nenni ekki mikid ad blogga i gegnum simann min svo eg lät heyra i mer seinna ok.Sendum ast og knus a alla

5. Nóvember

Góðan daginn þar sem það var nóg um að vera hjá mér i gær náði ég ekki að skrifa þessa færslu og langar mig aðeins að tala um daginn i gær og þennan dag fyrir ári siðan.Þessi dagur 5 Nóv mun alltaf vera okkur mjög minnisstæður,fæ svona pinu sting i magann þegar það liður á þessum deigi.Æji,,,ég veit ekki kannski er ég svona hjátrúafull eða bara hræðsla um að eitt hvað annað hræðilegt komi fyrir á þessum deigi 5 Nóvember.....

Ég ætla að byrja á deiginum i gær,litla hetjan min fékk loksins að fara i aðgerðina i gær.Við erum buin að vera hér heima i einangrun í viku samkvæmt læknisráði og villingurinn minn náði sér samt i svaka kvef Devil við og doksi vorum ekkert ánægð með það.En ákvorðun var tekin og setja aðgerðina i gang,sýklalyf i æð fyrir hjartað og 5 daga sýklakúr svo hún fái ekki sýkingu i sárið.Þetta gekk bara allt súper vel i gær,hún pinu vælin og vildi litið borða en mér til mikillra ánægju drakk hún mjög vel.Hún vaknaði mjög illa og litið pirruð út i plásturinn sem var á höndinni,eftir lyfjameðferðina i sumar þolir hun ekkert sem er fast um höndina sina.Hun vaknaði tvisvar i nótt sem er bara mjög gott miða við 10-20 sinnum,vona bara að nætturnar fara róast hjá okkur.Kirtlanir vorum bara nokkuð stórir og ég held bara svei mér þá að hann hafi tekið kvefið lika hehe,,,,:).Dr Ásgeir bjallaði i mig á þri var að ath hvernin vinkona sin hefði það og tjáði honum bara að hun væri ekki nógu góð og væri bara að gefast upp á þessu.Hann vill hitta okkur næsta mán og byrja aftur á sýklameðferð i eitt hverjar vikur,Guðny fór i þessa meðferð i April i 6 vikur og þetta virkaði ekki neitt...Svo hann vill reyna á þetta aftur og liklegast setja mótefnisgjöf inn á Barnaspitala aftur i gang i Des.Við sem vorum komin sterklega á það að þessar 3 gjafir væru að duga,og myndum sleppa i vetur en auðvitað er eg feigin að þetta sé gert ef þess þarf,þvi þetta hjálpar og maður vill allt til að hjálpa börnunum sinum.Svo veturinn litur ut fyrir lyfjameðferð 3 vikna fresti i 4-6 tima inn á spitalanum en þetta er ekkei það versta litum bara á þetta sem lifsreynslu og stund með henni...

5.Nóvember fyrir ári siðan var ekki okkar besti dagur Guðny rúmlega 5 mánaða og veiktist,ekki i fyrsta skiptið en i fyrsta skiptið alvarlega.Nokkrum dögum fyrir breytist hennar venja,aður fyrr gat hún sofið allan sólahringin og drakk brjóstið.Viku fyrir 5 nóv svaf hún ekki ein lúr i 7 daga og drakk litið sem ekkert.Ég fer með hana á heilsugærsluna mina og þaðan var ég send beint niðrá bráða á spitalanum,þar voru teknar blóðprufur og tók margra klukkutima bið.Nokkrum timum seinna var okkur upplýst að hún væri að þorfna upp,þyrfti að leggjast inn og fá töluverðan vökva i æð.Eftir smá tima kom i ljos að Lifrin hennar væru ekki að vinna rétt sem var bara mikið sjökk og mjólkin min nánast fór,svo fékk ég ekki þessar fréttir neitt skemmtilega i andlitið og sá læknir sem kaspraði þetta á eftir mér vill ég aldrei sjá aftur,ég fæ alveg hroll þegar ég sé hann....Þegar þessi blóðprufa kom fram var ákveðið að taka fleiri þvi það geta verið milljón ástæður fyrir Lifrabólgu og dvölinn okkar var 5 dagar allskona prufur og rannsóknir.á 5 deigi fengum við að vita að barnið okkar er með hjartagalla (sem við vissum af)Einkerningarsótt (sem réðist svona svakalega á Lifrin)Mjólkuróþol og fæðuofnæmi....ónæmisgallinn kom svo ekki i ljós fyrr en i Mai sl.Þetta var allt mjög stór biti að fá og þetta tók hana 8 vikur að jafna sig þvi hún var alltaf að fá eitt hverjar sýkingar ofan í þetta og neitaði að borða og drekka svo nokkrar ferði voru til að fá vökva i æð....Petrea er svo að byrja aftur tvisvar i viku i sjukraþjálfun svo það er sko nóg að gera i þessu á þessum bæ hehehe,,,,,

Þennan sama dag fyrir ári fengum við símtal á meðan við vorum með barnið inn á spitala,um að bróðir mömmu minnar hafi látist i vinnuslysið sem var bara hræðinlegt.Ég náði samt eitt hvern veigin ekki að syrgja á þessari stundu þvi hugurinn minn var allt annarstaðar,ég skammaðist min pinu fyrir það en minn sorgarferill kom seinna og var vel tekið á honum þegar hann brástst út.Ég get alveg sagt að hans er saknað þótt ég hafi ekki mikið séð hann á minum eldri árum þvi hann flutti erlendis,en var mikið i uppáhaldi þegar ég var unglings stelpa...Á meðan spitalavistinni stóð var lika minningarathöfn og jarðaför,Þær á spitalanum svo mikið æði og léku sér að henni á meðan og pössuðu hana vel.Í minningarathöfnini var beðið fyrir Guðnyju sem mér fannst mjög gott og róandi,ég veit sko vel að hann Rabbi fylgir henni vel og passar......Og vonandi á betri stað og að þér liður betur elsku Rafn minn......

Jæja ég hef ekki tima til að skrifa meira i bili en eins og þið sjáið þá er þetta ekki alveg minn besti dagur :)

Hafið það sem allra best i bili.


Nokkrar myndir úr myndatökunni...

Myndataka 3,10,08 001

Myndataka 3,10,08 002

Myndataka 3,10,08 004

Myndataka 3,10,08 071

Myndataka 3,10,08 005

Myndataka 3,10,08 051

Myndataka 3,10,08 093

Myndataka 3,10,08 094

Myndataka 3,10,08 063

Myndataka 3,10,08 058

Myndataka 3,10,08 099

Fallega hetjan mín...

Myndataka 3,10,08 008

Myndataka 3,10,08 011

Myndataka 3,10,08 080

Myndataka 3,10,08 023

Myndataka 3,10,08 024

Myndataka 3,10,08 032

Myndataka 3,10,08 101

Prinsessurnar mínar....

Myndataka 3,10,08 013

Myndataka 3,10,08 015

Myndataka 3,10,08 078

Myndataka 3,10,08 122

Sæta fjölskyldan okkar InLove


Í einangrun fram yfir næstu helgi :(

Sælt verið fólkið á þessum yndislega Laugardeigi.....

Doksinn hennar Guðnyjar hafði samband við okkur siðasta Miðvikudag,hann varaði okkur við slæmri magapest sem er að herja á landann i dag.Hún heitir Noroveirusýking,einkenni hennar eru slappleiki,flökurt og svimi,mikil æla og niðurgangur.Fullorðið fólk er að hrynja niður i hrönnum og liggja inni með vökva i æð ussss,,,,ekki gott.

Ég er nú bara þakklát fyrir þessa símhringingu frá honum,Guðný min má alls ekki við svona pestum.Hún er svo litil og létt,hún lokar lika á alla fæðu og drykkju þegar hún verður veik og léttist og léttist og svona pestar þýða bara innlagnir og með vökva i æð.Ekki viljum við þessa pest þvi hun er búin að ná svo góðum árangri i þyng og borða betur.....

Doksi bað okkur semsagt að halda okkur inni og litinn umgang inn á heimilið,bara vera heima i einangrun og hafa það kózy allavega fram yfir aðgerðina svo hun komist i hana og lika hún er bara búin að vera nógu veik siðustu vikurnar.

Ég get alveg sagt að ég er orðin örmagna og þreitt á þessum lángþráðum veikindum og svefnleysis.Þegar Guðný sefur er eins og hun sé i öndunarvél og hrýtur mjög skríngilegar,svo vakanar hún svona 10-20 sinum á nóttunni.Ég fékk i fyrsta skiptið i langan tima 7 tima svefn siðasta lau þegar Guðny systir min var með hana fyrir okkur og VAKNAÐI EKKI EINU SINNI ohh,,, hvað það var næs væri sko alveg til i svoleiðis aftur.Vonandi lagast þetta eftir kirtlatökuna bara plizzzz.......Á svona dögum þakka ég bara fyrir að vera heima og ekki að vinna,get verið heima fyrir hana og vonandi haldið henni öruggri og lika það er verið að segja öllum upp og litil vinna að fá og samt er fólk alltaf að spurja mig af hverju ég sé ekki að vinna ekki alveg að skilja það hehehe,,,héld að það væri augljóst.Væri ekki bara búið að segja mér upp eins og manninum minum var sagt upp vegna samdráttar ÖMURLEGT fyrir svona fjölskyldu eins og okkar sem má alls ekki við svona sjökki og missi nóg er fyrir okkur að hafa áhyggjur af barninu okkar....

Jæja hætt að væla og ætla fara og eiga góðan dag með femliunni,þrifa fyrir matarboðið og svona dúllerí hér heima.........

Love Erna Heart


Smá myndir af síðasta tjútti..

Sætar

Gellur :)

Styrktarsöfnun 172

Styrktarsöfnun 165

Jæja sumir orðin ágætir þarna hehehe,,,,

Styrktarsöfnun 171

Ok fint þarna var svo farið á Yello,myndavélin skilin eftir og við dönsuðum fram að rauðan dauðan W00t Þessa helgi ætlum við bara að njóta þess að vera með börnunum 5 og vera með matarboð á morgun.Sun ætlum við svo i bíó með börnin og hafa það kózy.

Góða helgi allir :=)


Það sem börnum dettur i hug að segja hehehe,,,

Mér fannst börnin min alveg ótrúleg hér i gær að ég bara verð að setja þetta samtal okkar við matarborðið i gær niðrá blað Tounge Þetta byrjar þannig að ég er bara að elda ómerkilegan mat handa okkur fjórum ''Núðlusúpu'' btw uppáhaldið þeirra.Petrea kemur ohh af hverju svona i matinn(uhh þetta hefur aldrei sagt við þessu),ég sagði bara afsökun átti ekki penning fyrir mat og þetta var til i skápnum.Þá kemur Viktoria min sko mamma min það er kreppa,bánkarnir farnir á hausinn og enginn peningur til á landinu.EEEN sem betur fer var ég svo klár að fara ekki með baukinn minn i bankann,svo þú mátt taka hann og fara með hann i bónus og kaupa að borða handa mér hahahaha,,,,,.BÓNUS GEFUR ÞÉR SVO BARA MEIRI PENING ÞÁ GETUM VIÐ BORÐAÐ NÓG....Haldiði að maður sér krútt eða ekki sko 6 ára og veit sko vel um hvað er að gerast i þessu þjóðfélagi.........Og ég veit vel hvar ég get fengið pening lánaðan hehe,,hún er svo góðhjörtuðHeart

Jæja vildi bara deila þessu með ykkur nú ætla ég að fara lúlla mér áður en litla min vaknar siðasta nótt var ekki góð.Þið getið lesir hér smá færslu http://juni.barnaland.is endilega kvitta lika elskum þau :)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband