Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Búin að vera mjög léleg hér :(

Góðan daginn allir..Ég þarf að fara bæta mig hér inná,en ég er búin að vera bara inn á facebookinu og nota Barnalandsíðurnar:)Ég ætla setja bara inn linkana á siðunum svo þið getið lesið svona smá fréttir af okkur,svo lofa eg að fara koma meira her inn...En nú er sumarið að koma svo maður kannski kemur ekki með allar fréttir:)

http://juni.barnaland.is

Guðný Ósk er búin að fara i 2-3 lyfjameðferðir siðan eg skrifaði siðast...Hún fór i siðustu gjöfina núna á þri svona fyrir sumarfrí allaveg.....Hetjan min er búin að vera mikið veik siðan i Jan en fær góða daga,vikur inn á milli sem betur fer....Hún er búin að stækka alveg helling en er alveg búin að standa i stað með þyngd siðan i Jan,hún á samt góða daga sem hun er bara á beit hehehe......

http://januar.barnaland.is

Stóru stelpurnar minar eru bara að standa sig með glæsiprýði i skólanum:)Petrea fór i þessar 3 daga rannsóknir inn á barnaspitalanum og kom bara vel út...Heila og taugalæknirinn vill samt fá að skoða hana 6 mánaða fresti.Hún er núna komin i sumarfrí fra sjukraþjálfun og gengur bara vel þar.Allt gengur rosa vel´hjá Viktoriu minni ekkert læknavesen þar á ferð sem betur fer á alveg nóg með þessar tvær :)Hún er bara hörkudugleg og mjog áhugsöm við öllu sem hun leggur hendur á :)

http://nov09.barnaland.is

Já við eigum von á litlu kríli i Nóv sem allir eru orðnir spenntir yfir:)Krílinu líður bara vel en eg er búin að vera bara með kvilla sem þessu fylgir hjá mér....Of hárblþ svo eg var að fara á lyf og er núna bara að venjast þeim.Þau valda mer pinu svima og hausverk.....Ég þarf svo að vera vikulega i mæðravend........

Jæja við ætlum að fara út og njóta veðursins heyrumst seinna:)


Segulómun á heila ofl...

Sæl öll sömul...

Mig langar að byrja á því að monta mig yfir hvað hetjan min er búin að vera hress undafarna viku jeijei...Og 7,9,13:)Guðný er bara búin að vera hress frá þvi hun fór i siðustu lyfjameðferð um miðjan Feb sl.Það er ótrulega gaman að geta gert hvað sem er og farið hvert sem er,þvi það getur maður ekki gert oft með svona veik börn alltaf.Hún er en pinu með hvepalink enda en með þessa sykingu sem tekur svo langan tima að fara úr.Siðustu tvo mánuði erum við búin að vera mikið innilokuð i einangrun nánast,svo það er bara æði að vera aðeins laus nuna...Við eru bara búin að njóta þess að gera skemmdilegt með börnunum og fá smá tima útaf fyrir okkur tvöInLove

Ég var vist búin að lofa að koma með færslu um annan tviburann hana Petreu,en hef bara ekki komið mér i það og ætla reyna núna........Við fæðingu átti Petrea min mjög erfitt og líf hennar mjög tvísýnd.Hún er fædd 6 vikum fyrir timann og tæp 10 merkur sem ég tel bara mjög gott miða við systur hennar sem rétt náði 7 merkum.Petre min dó i fæðingu eins og lækna seigja en þeir náðu að endurlifga hana sem betur fer,Lungu féllu saman og fékk lugnabólgu og þurfti syklalyf i æð i 4 vikur......Ári siðar lamast Petrea fyrir neðan mitti og tók þar við löng rannsókn inn á Barnaspitala en ekkert fannst nema sökkið i blóðinu var og hátt.Hún jafnaði sig svo á þessu á nokkrum dögum,en þetta kemur fyrir árlega en samt ekki eins alvarlegt og fyrstu tvö árin.Við tókum eftir þessu alltaf þegar kólna fór i veðri og hun verður alltaf mjög lin i öllum útlimum á veturnar,en minna yfir heita timann...Læknar sögðu hana með barnaliðamótagigt og sett i Sjukraþjálfun og Iðjuþjálfun...Hún er búin að standa i henni siðan 2006 og er ekkert orðin betri,eiginlega bara afturför hjá henni;(Hún er eftir á i hreyfiþroska og i málþroska en alls ekki i félagslega eða við námið.Siðan i Okt 08 til Jan 09 hafði hun létts um 6 kiló sem er bara hræðinlega mikið.Þá fór ég og talaði aftur við hennar lækna lið og nyjalækna.Nýjulæknunum fannst bara hræðinlegt hvað ekkert er búið að gera fyrir okkur nema endalaus sjukraþjálfun því stulkan þarf betri stuðning en það og fá greiningu hvað sé að.....

Þeirr eru búnir að seigja mér marga möguleika en mér finnst þeirr allir svo hræðinleigir að ég hef eiginlega bara verið að blogga þetta út..Það sem þeirr telja gæti vera að barninu minu er Taugasjukdómur,Vöðvasjukdómur eða Hrörnunarsjukdómur á vægustigi og heilaskemmt eftir fæðingu..Að heyra þetta er búið að vera mjog erfitt en við vonum það besta og einhvað gott komi út úr þessuHalo

Við verðum i tvo daga inni á Barnaspitalanum i næstu viku með bæði börnin okkar;(Guðný fer i lyfjagjöfina og Petrea i tveggjadaga rannsóknir,núna verður bara allt rannsakað sem hægt er að rannsaka..Ég veit allavega að þeirr ætla að gera Segulómskoðun á heila og myndir af mænu og taka vökva svo ristilspeiglun og magaspeiglun...Í þessu þarf hún að vera svæfð sem ég er eiginlega bara feigin og léttir pinu á....Úfff ég er farin að finna svo mikið til með henni en hún er svo sterk þessu duglega stelpa mín.Ég hugsa að mömmunum finnst þetta alltaf verra en börnunum....Smile

Jæja ég seigi þetta gott i bili og læt fyrlgja myndir af Öskudeiginum,þar sem tvibbarnir vöru Þyrnirós og Guðný Álfaprinsessa..

Jan og feb 09 195

 

 

 

 

 

 

Jan og feb 09 191

 

 

 

 

 

 

 

 

Algjörar snúllur:)


Lyfjagjöf nr 5

Smá fréttir af stóru hetjunni minni Grin

Við vorum komin inn á Barnaspitalann kl 8,30,þetta byrjaði allt mjög brössulega hjá stelpunni og ég ein með hana sem er svo týpist.Henni fannst allt i lagi að koma inn á spitalann og upp á 3 hæð og leika og svona,svo sá hún skoðunar herbergið og bara TJÚLLAÐIST FEITT krakkinn bara umturnaðist,það var svo sárt og erfitt að horfa upp á þetta skap i henni CryingLoks um hálf 11 náðist að skoða hana og þá fannst Eyrnabólga og sýking i öndunarfærunum sem varir við i likamanum allt að 3 mánuði og er erfitt að losna við.Þetta bara skýrir margt slímið sem kemur upp hjá henni og ljóta hóstann siðast liðin mánuðinn...Þá fékk hún sýklalyf einaferðina enn og Ventolin púst til að hjálpa til með öndunina.Ásgeir var á báðum áttum hvort ætti að gefa henni skammtinn,því þetta er eins og að henda olíuna á eldinn.Við spjöllum bara saman og hann útskýrði vel hun gæti orðið mjog lasin eftir þetta.Lyfin voru látin renna í og gekk það mun betur en síðan,skvísan fékk engann hita eða einkenni sem geta komið fram.Ég hafðu nú bara ekki undan við að hlaupa á eftir henni með viðhaldið á milli hæða hehe LoLÞað var dansað og i leiki inn á leikstofu svaka fjör i gangi....Við vorum svo búnar rétt fyrir  fimm minnir mig.Um helgina bætist svo bara ælupest og niðurgangur svo það er allur gangur búin að vera á þessu heimili siðustu tvo mánuði.Sem betur fer hefur hetjan min fengið nokkra góða daga inn á milli...

Guðný átti að eiga tvær gjafi eftir en Ásgeir vill bæta 3-4 til viðbóta á þær svo við erum bara ekkert á leiðinni þaðan i burtu,öruglega ekki fyrr en það fer að líða á næsta vertur...Ég var pínu svekkt yfir því en fljót að jafna mig og snúa þessu við i jákvætt:)

Skvísan min varð svo 20 mánaða siðasta Laugardag.Hún hefur en ekki geta fengið 18 mán sprautuna sem átti að gefa i byrjun Jan en ekki hægt vegna endurtekna veikinda:(Hetjan min er sko farin að hlaupa hér um allt og hoppar eins og hun fái borgað fyrir það,svo talar hun hér none stop allan daginn hahah bara krútt þessi elska InLove

Jan og feb 09 158

 

 

 

 

 

 

 

Hún ætlar sko að fá sér svona bíll þegar hún verður stór:)

Jan og feb 09 040

 

 

 

 

 

 

Hérna fengum við eina góða helgi i Januar og fórum með liðið i Husdýragarðinn :)

Búin að setja inn myndir Facebookið mitt sem þið getið kíkt á..

Ást og knús á alla og hafið það sem allra best Heart


Áhyggjur!!!!

Ég hef litið komið og bloggað því ég hef bara mjög litla orku likamlega og andlega...Allur Januar mánuður var bara hræðinlegur út i eitt og langaði mig bara spóla yfir hann.Febrúar byrjaði bara mjög svipaður og Jan en allt vonandi að róast núna;)Veikindi,veikindi mikið lækna vesen með báðar dættur minar og hræðinlegar fréttir sem ég ætla ekki að seigja hér frá;(En ég ætla að skrifa hér niður eftir helgina um hana Petreu mina....

Guðný Ósk var með Misslingabróðir i annað skiptið og Veirusykingu fyrstu 2 vikurnar i Jan..Hetja min fór svo i lyfjagjöfina 15 Jan,byrjaði hún þar með hita og var hann svo bara fastur við hana sem eftir var að Januar mánuðinum nánast.Svona til að hafa þetta stutt þá er skvisan búin að vera meira og minna lasin i einn og hálfan mánuð.Bronkítis,hita og vott af Lugnabólgu svo kom úr niðurstöðum sl Mánudag að hún er með eitthverja bakteríur i nefinu sem geta blundað það næstu 2-3 mánuðina :(Mikið slím kemur upp úr henni við að hósta og endalaust verið að sníta nebbalinginn.Rútinan hennar er öll að komast upp núna á siðustu dögum,eins og dagmamman og borða,svefninn.Svefninn hennar fór alveg i rugl i svona miklum veikindum.Litli engillinn minn sofnar hér allaf milli 8 og 9 með systrum sinum svo þetta er bara minn timi til að anda og slaka á,en nuna i mánuð hef ég verið að ná henni i svefninn um miðnæti og það með öskrum og látum að ég sitt sum kvöld hér bara búin á þvi og græt mig svo i svefn bara búin á þvi eftir daginn og kvöldið.Ég helt að ég hafi fengið svona vægt taugaáfall i siðustu viku,ég svitnaði oll upp og hjartað i mér svo þungt að ég heyrði i því slá og varð bara mjog illt i því og sviminn fór alveg með mig..Ég hef alveg fengið svona kvíðaköst áður en bara svo langt siðan.Crying

Guðný er komin á sýklalyf eina ferðina enn og á pústi til að hjálpa með andadráttin.Hún er öll að verða betri og farin að liða vel..Við verðum svo inn á Barnaspitala á morgun i lyfjagjöf nr 2 KROSSUM BARA PUTTA AÐ HÚN KOMI EKKI VEIK ÞAÐAN ÚT:)

Januar,Febrúar og Mars,Apríl verða mikilir lækna mánuðir og nokkrar innlagnir inn á spitala,bæði með Guðnyju og Petreu.Ég ætla að koma með blogg um það eftir helgina:)Eins og ég sagði i byrjun...

Það er búið að vera svakalegt álag á mér eftir að Haffi tók við nýrri vinnu,sem er sko æðislegt ekki misskilja mig því ekki eru allir svo heppnir i dag að hafa vinnu.En það er alveg hræðinlegur galli við þessa vinnu hvað hann vinnur mikið utanbæjar.Hann er að keyra fisk á milli Hólmavikur og Isafjarðar,fer á Sunnudögum og kemur heim á föstudögum og fer þá beint i leigubilinn.Þetta er sko alltof mikil vinna en svona verður þetta að vera.Ég get alveg sagt að svona vinnutími er ekki mjog góður fyrir fjölskyldu fólk en þetta verðum við bara að gera ´því ég kemst ekki á vinnumarkaðinn og við erum bara komin i það að missa allt úr höndunum á okkur.Íbúðin i bænum selst ekki og lánin á báðum eignum og bilnum hækka og hækka.Við áttum 12 milljónir i eignini i bænum fyrir einu ári siðan og fengum leifi á að byggja og áttum að geta staðgreitt i alla bygginguna.En lánin voru svo fljótt að éta upp peninginn okkar og ekkert gengur að selja svo við höfum ekki geta borgað 6 milljónir i bygginguna.Ef við myndun ná að selja eignina i bænum nuna kæmum við i minus út svo á einu ári erum við búin að tapa 12 milljónum bara sí svona.Nuna getum við ekkert staðgreitt og fyrirtækin að senda allt i Lögfræðing.Æji vonandi skiljið þið bara hvað ég er að meina,á svo erfitt með að útskyra og tjá mig skriflega.Þetta er bara hræðnlegt bæði bara að vera i þessari stöðu og vita að svo margir eru i þessari stöðu.Ég verð svo reið og pirruð en samt langar mér ekkret að láta þetta angra mig,en ég get bara ekki leitt allt framhjá mér.Ef ég myndi ekki velta mér upp úr þessu og pæla þá væri oruglega löngu búin að missa allt og það viljum við ekki svo við höldum áfram að berjast i þessu saman bæði með fjárhagan og veikindin...

Mig langar að þakka fyrir öll góðu kommentin og stuðninginn sem við höfum fengið hér á þessari siðuHeartÉg sé að fólk kemur hingað og fylgist með okkur og hvetjum við alla um að kvitta eftir sigKissing

Kveðja Erna Sif ;)


Fallegur stelpurnar minar 7 ára i dag :)

Þá er komið af stóra deiginum þeirra og mamman komin með gráu hárin hehe...Ótrúlegt að litlu börnin min séu orðnar svona stórar..Hér var haldin stór veisla í gær,eða um 20 krakkar plús mín 5 svo húsið var alveg pakkað má segja W00tÞað var borðað hér vel af kökum og nammi og farið i full full af leikjum.Við erum nú en að kafna í kökum en við fáum hér góða gesti i dag og i kvöldTounge.Dagskráin er nú alveg full hja tvibbunum um helgina.Þær fóru til pabba sins eftir afmælið i gær,og fá svo afmælisveislu hjá honum i dag á afmælisdeiginum þeirra Wizard

Mig langaði bara að óska þeim til hamingju með daginn hér og mamma og Haffi elska ykkur rosa mikiðInLove

Jan og feb 09 059

 

 

 

 

 

 

Jan og feb 09 069

 

 

 

 

 

 

Prinsessurnar mínar :)

Komnar fleiri myndir inn á http://januar.barnaland.is og inn á Facebook


Embla Dís Hetju stelpa :)

Mig langar biðja alla um að hafa þessa gullfallegu stelpu i huga og byðja vel fyrir henni.Hún er úti í Boston núna i stóri og mikilri Hjarta aðgerð.Því miður er ekki að ganga allt of vel henni:(Hlýjar og góðar bænir geta alltaf hjalpað...

Hér er siðan hennar þar sem þið getið fylgst með henni og sent góða strauma http://barnaland.is/barn/78785/vefbok

Við byðjum til þín og kveikjum á kerti Heart


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband